—
Hér er lýst hvaða persónuupplýsingum Sólarföt (Trafkon ehf, kt. 590521-0270) safnar, og hvernig þær eru notaðar og varðveittar. Í grunninn er persónuverndarstefna okkar einföld. Við söfnum eingöngu þeim upplýsingum sem við þurfum til að geta veitt þér góða og persónulega þjónustu og uppfylla lagakröfur. Við afhendum upplýsingarnar aðeins til annarra ef það er nauðsynlegt vegna þeirrar þjónustu sem þú óskar eftir eða sökum lagaskyldu.
—–
Við söfnum og varðveitum persónuupplýsingum um viðskiptavini okkar. Þessar upplýsingar eru notaðar til að geta veitt þá þjónustu sem óskað er eftir, og góða og persónulega þjónustu. Þetta eru til dæmis upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang, greiðsluupplýsingar, viðskiptasögu, samskipti (t.d. tölvupósta og skilaboð á samfélagsmiðlum), vefkökur, IP-tölur og aðrar tæknilegar upplýsingar. Við deilum þessu með þriðja aðila eingöngu ef það er nauðsynlegt til að geta veitt þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir, eða til að uppfylla lagaskyldur. Þetta geta til dæmis verið opinberar stofnanir, greiðsluþjónustur og fyrirtæki sem sjá um vefviðmót. Persónuupplýsingar eru geymdar í aðgangsstýrðum tölvukerfum, þar sem aðeins þeir sem þurfa hafa aðgang að þeim.
Þú getur valið að skrá þig á póstlistann okkar. Þær upplýsingar getum við notað til að senda tilboð, auglýsingar og markpóst. Öll vinnsla okkar í tengslum við það byggir á samþykki þínu og þú getur afturkallað það samþykki hvenær sem er. Ef þú vilt afturkalla samþykkið og afskrá þig af póstlistanum okkar, þá getur þú haft samband við okkur annað hvort gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðla. Við varðveitum upplýsingar þínar meðan samþykki þitt hefur ekki verið afturkallað, eða meðan lagakröfur krefjast þess, hvort sem kemur síðar. Við getum einnig eytt upplýsingum fyrr ef lög eða reglugerðir krefjast þess. Þú átt rétt á því að fá upplýsingar varðandi hvaða upplýsingar við höfum um þig og hvernig þær eru nýttar. Þú hefur einnig rétt á að uppfæra upplýsingarnar, óska eftir leiðréttingum eða að þeim sé eytt, enda sé ekki lengur þörf til þess að við geymum þær. Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi meðferð okkar á persónugögnum, eða þessa persónuverndarskilmála, eða vilt gera athugasemd, þá skaltu hafa samband með tölvupósti eða gegnum samfélagsmiðla, og við munum gera allt sem við getum til að leysa úr því. Þú hefur einnig rétt á að beina kvörtun þinni til Persónuverndar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Þessi persónuverndarstefna kann að breytast með tímanum, t.d. vegna lagabreytinga eða kröfum á okkur um meðhöndlun persónuupplýsinga.
