SKILMÁLAR
I. ALMENNT
Viðskiptavinir eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla hjá sólarföt.is.
Eigandi sólarföt.is er Trafkon ehf, kennitala: 590521-0270, virðisaukanúmer: 141279, tölvupóstur: solarfot@solarfot.is, sími: 839-7014.
Sólarföt.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, breytinga á verði eða afhendingartíma, sem og hætta sölu á vöru fyrirvaralaust. Upplýsingar um verð og birgðastöðu er birt með fyrirvara um prentvillur.
II. AFHENDING VÖRU
Allar pantanir eru afhentar innan þriggja virkra daga til Dropp. Dropp býður upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu. Hægt er að sjá alla almenna afhendingarstaði Dropp hér: https://dropp.is/kort
Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar gilda. Sólarföt.is ber samkvæmt því enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði varan fyrir tjóni frá því hún er afhent flutningsaðila er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem valinn er. Sendingarkostnaður greiðist af viðskiptavini.
Sóttar pantanir: Sólarföt.is tekur sér 1-3 virka daga til afgreiðslu pantana sem sækja skal á lager. Kaupanda berst staðfesting á tölvupósti þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar á lager. Viðskiptavinur sem velur að sækja pöntun á lager, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.
III. GREIÐSLA
Öll verð sem finna má á sólarföt.is eru gefin upp með 24% vsk en sendingakostnaði er bætt við áður en greiðsla fer fram.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar.
IV. SKILARÉTTUR
Sé vöru skilað innan 14 daga fæst hún endurgreidd, sé vöru skilað innan 30 daga fæst henni skipt fyrir aðra vöru eða inneignarnótu. Framvísa þarf sölureikningi/kvittun sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi. Ef vara er innsigluð má það ekki vera rofið. Við skil á vöru er miðað við verð vörunnar þann dag sem hún var keypt.
Tilboðs- og afsláttarvörum og neðrihluta sundfatnaðar er ekki hægt að skila né skipta.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kaupandi stendur straum af kostnaði sem hlýst við að koma vörunni til sólarföt.is.
Sólarföt.is metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum.
V. GÖLLUÐ VARA
Sólarföt.is reynir eftir bestu getu að tryggja gæði vara sinna, hins vegar ef komi upp sú staða að um gallaða vöru sé að ræða verður farið eftir lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Leiki grunur á um að vara sé gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður, hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið saman.
Gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent kaupanda.
VI. LÖG OG VARNARÞING
Skilmáli þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal því vísað til Héraðsdóms Reykjavikur.
VII. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Hér er lýst hvaða persónuupplýsingum Sólarföt.is (Trafkon ehf, kt. 590521-0270) safnar, og hvernig þær eru notaðar og varðveittar. Í grunninn er persónuverndarstefna okkar einföld. Við söfnum eingöngu þeim upplýsingum sem við þurfum til að geta veitt þér góða og persónulega þjónustu og uppfylla lagakröfur. Við afhendum upplýsingarnar aðeins til annarra ef það er nauðsynlegt vegna þeirrar þjónustu sem þú óskar eftir eða sökum lagaskyldu.
Við söfnum og varðveitum persónuupplýsingum um viðskiptavini okkar. Þessar upplýsingar eru notaðar til að geta veitt þá þjónustu sem óskað er eftir, og góða og persónulega þjónustu. Þetta eru til dæmis upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang, greiðsluupplýsingar, viðskiptasögu, samskipti (t.d. tölvupósta og skilaboð á samfélagsmiðlum), vefkökur, IP-tölur og aðrar tæknilegar upplýsingar. Við deilum þessu með þriðja aðila eingöngu ef það er nauðsynlegt til að geta veitt þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir, eða til að uppfylla lagaskyldur. Þetta geta til dæmis verið opinberar stofnanir, greiðsluþjónustur og fyrirtæki sem sjá um vefviðmót. Persónuupplýsingar eru geymdar í aðgangsstýrðum tölvukerfum, þar sem aðeins þeir sem þurfa hafa aðgang að þeim.
Þú getur valið að skrá þig á póstlistann okkar. Þær upplýsingar getum við notað til að senda tilboð, auglýsingar og markpóst. Öll vinnsla okkar í tengslum við það byggir á samþykki þínu og þú getur afturkallað það samþykki hvenær sem er. Ef þú vilt afturkalla samþykkið og afskrá þig af póstlistanum okkar, þá getur þú haft samband við okkur annað hvort gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðla. Við varðveitum upplýsingar þínar meðan samþykki þitt hefur ekki verið afturkallað, eða meðan lagakröfur krefjast þess, hvort sem kemur síðar. Við getum einnig eytt upplýsingum fyrr ef lög eða reglugerðir krefjast þess. Þú átt rétt á því að fá upplýsingar varðandi hvaða upplýsingar við höfum um þig og hvernig þær eru nýttar. Þú hefur einnig rétt á að uppfæra upplýsingarnar, óska eftir leiðréttingum eða að þeim sé eytt, enda sé ekki lengur þörf til þess að við geymum þær. Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi meðferð okkar á persónugögnum, eða þessa persónuverndarskilmála, eða vilt gera athugasemd, þá skaltu hafa samband með tölvupósti eða gegnum samfélagsmiðla, og við munum gera allt sem við getum til að leysa úr því. Þú hefur einnig rétt á að beina kvörtun þinni til Persónuverndar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Þessi persónuverndarstefna kann að breytast með tímanum, t.d. vegna lagabreytinga eða kröfum á okkur um meðhöndlun persónuupplýsinga.
