Um Sólarföt

Flest okkar elskum að vera úti á fallegum sumardegi, hvort sem við erum að njóta íslenska sumarsins, spóka okkur á sólarströnd eða í sundlaug, við íþróttir, eða einfaldlega að leika okkur í góða veðrinu. Flestum okkar finnst útivera skemmtilegri í góðu veðri, en hæfileg sólarvera er nauðsynleg svo líkaminn geti framleitt D-vítamín. Á sama tíma er húðin okkar viðkvæm fyrir of mikilli sól, sérstaklega hjá ungum börnum. Við getum brunnið með tilheyrandi óþægindum, og UVA og UVB geisar sólarinnar geta ollið skemmdum á húðinni sem hafa áhrif síðar á ævinni. Það er því um að gera að verja húðina eins og hægt er, hvort sem það er með skynsömum sólarvenjum, sólarvarnarfötum, eða sólarvörn. Besta leiðin til að verja börn fyrir sólinni eru föt eða sundföt sem hindra skaðlega geisla, sem minnkar álagið á húðina og líkur á bruna, og geta þannig notið sólarinnar áhyggjulaust án þess að þurfa að bera á sólarvörn (það er, þá hluta sem fötin hylja).

Við sérhæfum okkur í og seljum sólarvarnarfatnað (UPF fatnaður). Hann er gerður úr efnum sem vernda okkur fyrir upp að 98% af geyslum sólarinnar. Verndarþáttur sólarvarnafata er mældur með Ultra Violet Protection Factor (UPF, ath. ekki það sama og SPF sem er notað fyrir sólarvarnir), en það kerfi var þróað af Áströlskum stjórnvöldum til að gefa til kynna hversu mikla vernd flíkin veitir gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. UPF skalinn er á bilinu 15 til 50+, þar sem hærra gildi veitir meiri vörn, og fatnaður með UPF50+ hindrar 98% allra skaðlegra geisla. Við leggjum áherslu á að vera með vandaðar vörur sem eru með hátt UPF gildi, sem dæmi þá eru öll sólarvarnarfötin okkar með UPF50+. Við erum með bæði sólarhatta, síðermaboli, stuttbuxur og sólarskó. Á þann máta geta börnin verið meira í vatninu og á ströndinni, og þið þurfið ekki að hafa eins miklar áhyggjur af þeim, auk þess að maður finnur ekki eins mikið fyrir hitanum þegar maður er í sólarvarnarfötum og ef maður er í venjulegum fötum.

UPF VÖRN – HVERNIG GERIR MAÐUR FÖT SEM VERJA FYRIR GEISLUM SÓLARINNAR?

Sólarvarnarföt ná varnargildi sínu úr sjálfu efninu og hvernig það er ofið. Það er því ekki um neina efnameðferð eða aukaefni að ræða. Eftirfarandi þættir hafa áhrif á hversu vel föt verja gegn sólinni:

1.      Þéttleiki efnisins – því þéttara sem efnið er því minni UV geislum hleypir það í gegn að húðinni.

2.      Tegund trefja – Nylon og elastín sem sundfötin eru úr trufla mikið af UV-ljósinu, á meðan efni eins og bómull verja ekki eins vel.

3.      Því dekkri sem flíkin er – almenn regla er að því dekkri sem efnið er því meira útfjólubláu geislunum er hindrað að fara í gegnum efnið. Þú þarft samt ekki að óttast það að velja hvíta boli – öll fötin okkar eru með UPF50+, hvítu fötin okkar eru nógu þétt til að loka samt fyrir 98% geisla.

4.      Teygjanleiki og bleyta hafa áhrif á efnið. Ef efnið er of strekkt kemst meira UV ljós í gegn. Til að koma í veg fyrir að teygja skal handþvo frekar en að nota þvottavélina.

Sólarföt.is eru rekin af Trafkon ehf, kt. 590521-0270, Haukdælabraut 38, 113 Reykjavík. Ef þið hafið einhverjar spurningar, þá er ykkur velkomið að hafa samband á solarfot@solarfot.is.

10% afsláttur

Skráðu þig á póstlistann og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntuninni.

Við sendum þér svo annað slagið upplýsingar um nýjar vörur og tiboð.